Úr velferðardeildinni:
—
„Ég er búinn að leigja mér íbúð á Spáni“ segir eldri borgari og öryrki sem er búinn að fá nóg af dýrtíðinni á Íslandi. „Ég leigi litla íbúð á Spáni fyrir 350 evrur á mánuði (40 þús.) og get leyft mér ýmislegt en hérna getur maður ekkert leyft sér neitt“.
Hann segir að kostnaður við leigu, mat og lyf sé að drepa eldri borgara og öryrkja þess vegna flýja þeir til Spánar eða til heitari landa því þar fá margir hverjir bót meina sinna við að vera í hitanum og svo hægt að leyfa sér margt í mat og lyfin eru mjög ódýr.
“Mikið af mínu vinafólki er í sömu hugleiðingum og ég, það er að segja að flytja úr dýrtíðinni á Íslandi,” segir þessi eldri borgari en samkvæmt heimildum þá sjá fasteignasalar mikla aukningu í sölu á eignum erlendis eftir afnám hafta.