Hann sat undir stýri, bíllinn kyrrstæður ogí útvarpinu söng einhver lag þegar þessi sletta skvettist á framrúðuna líkt og innrás frá Mars.
Picasso, Miro?
Svo kom vatnsbuna, skolaði öllu frá og nýi Kópavogur blasti við i gegnum rakann.
(Snertilaus bílaþvottastöð Löðurs við Smáralind kl. 16:30)