Quantcast
Channel: Eiríkur Jónsson » Langar fréttir
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2053

ÞORSKASTRÍÐIÐ 40 ÁRA

$
0
0

Í ár eru liðin 40 ár frá lokum þorskastríðanna. Að því tilefni munu meistaranemar í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands í samstarfi við Borgarsögusafn Reykjavíkur opna sýninguna Þorskastríðin, For Cod‘s Sake, á Sjóminjasafninu í Reykjavík þann 13. maí næstkomandi kl. 17.

Sýningin Þorskastríðin, For Cod´s Sake fjallar um pólitískar deilur milli Íslands og Bretlands um fiskveiðiréttindi á Íslandsmiðum á árunum 1958-1976. Saga þorskastríðanna er rík og margslungin. Í henni koma við sögu fagurklæddir sjómenn frá Hull, ármenn Íslands eða strákarnir okkar, grjótkast og árekstrar bæði á hafi og í landi. Á sýningunni er varpað ljósi á ýmsa þætti þessarar sögu, suma lítt þekkta.

Sýningin er afrakstur vinnu nemenda í námskeiðinu Menningarminjar, söfn og sýningar sem er hluti af þverfaglegri námsleið í hagnýtri menningarmiðlun.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2053