Þessi kostulega mynd stórljósmyndarans Sigurgeirs Sigurjónssonar birtist á ljómyndavefnum Gamlar myndir en fyrst í Vikunni 1975 þegar þessir kappar voru í megrunarátakai; Albert Guðmundsson, fyrrum ráðherra og knattspyrnuhetja, Jón Gunnlaugsson, eftirherma og þekktur útvarpsmaður á sinni tíð auk þess að vera afi dægurstjörnunnar Tobbu Marinós, og svo óperusöngvarinn Kristinn Hallsson.
Áratug síðar var Albert í viðtali í sama blaði og var þar spurður hvernig menn yrðu ríkir eins og hann – og skki stóð á svarinu:
“Skapa sér traust og standa í skilum.”
Og þá var hann spurður hvort hann hefði ekki grætt mikla peninga í atvinnumennskuni í útlöndum:
“Þar sem margt fólk kemur saman, þar eru peningara.”