Eitt helsta ungstirnið í íslensku tónlistarlífi, Júníus Meyvant, mun syngja dúett með Árna Johnsen á sérstökum tónleikum í Eyjum í tengslum við goslokahelgi.
Lagið heitir Surtsey og er eftir Simma í Betel sem er faðir Júníusar og sonur Einars í Betel.
Fjölmargir aðrir lagahöfundar og flytjendur í Vestmannaeyjum munu koma fram á tónleikunum sem er ætlað að að endurvekja og færa til fyrra horfs þá tónlistarhefð sem lengi hefur ríkt í Eyjum.