Orri Páll Dýrason, trommuleikari Sigur Rósar og ástkona hans, María Lilja Þrastardóttir, eru að flytja til London þar sem þau ætla að koma sér fyrir í sumar með börnum og öllu.
“Þetta verður Londonsummer,” segir María Lilja sem er að ljúka við sína fyrstu bók, Ástarsögur íslenskra kvenna, og Orri Páll á ekki eftir að sitja auðum höndum því Sigur Rós verður á hljómleikaferðalagi vítt og breitt um Evrópu í allt sumar. Við þær aðstæður er betra fyrir fjölskylduna að vera í London.