Quantcast
Channel: Eiríkur Jónsson » Langar fréttir
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2053

GÚSTAF NÍELSSON LEIÐIR ÞJÓÐFYLKINGUNA

$
0
0

Gústaf Níelsson, sjalfstæðismaður frá barnæsku og álitsgjafi af hægri væng stjórnmálanna, hefur ákveðið að láta til skarar skríða, taka tilboði kosningaársinsog segir:

Af margvíslegum toga geta þær áskoranir verið, sem lífið og tilveran leggur mönnum á herðar. Sumar geta verið léttar, en aðrar þungar, jafnvel blýþungar. Nú hef ég fengið eina blýþunga í fangið.

Til mín hafa leitað foringjar Íslensku þjóðfylkingarinnar og óskað eftir því að ég skipi efsta sæti á lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður vegna alþingiskosninganna 29. október næstkomandi og tjáðu þeir mér jafnframt að alger einhugur væri um þessa tilhögun í Kjördæmisráði flokksins í Reykjavík. Satt best að segja kom þetta nokkuð flatt upp á mig, enda verið handgenginn Sjálfstæðisflokknum um áratugaskeið og gegnt fyrir þann flokk margvíslegum trúnaðarstörfum. Þó verð ég að játa, að mér hefur hin síðari misseri þótt sem leiðir okkar liggi ekki lengur saman af jafnmikilli einlægni og forðum. Kemur þar margt til og mun ég gera gleggri grein fyrir því síðar.

Eftir vandlega íhugun hef ég afráðið að verða við þessari ósk og mun leiða lista Íslensku þjóðfylkingarinnar í RN í komandi alþingiskosningum. Afstöðu minni ræður mest að ég treysti ekki Sjálfstæðisflokknum í þeim málum, sem heitast brenna á allri Evrópu um þessar mundir, en það eru málefni hælisleitenda og flóttamanna og íslamsvæðing álfunnar með fulltingi vinstri róttæklinga allra flokka. Undanlátssemi Sjálfstæðisflokksins í þessum fullveldis- og sjálfstæðismálum þjóðarinnar er slík að ekki verður við unað. Um þau ósköp bera nýsamþykkt lög um málefni útlendinga, sem taka eiga gildi um næstu áramót, skýrast vitni.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2053