Magnús veitingamaður í Texasborgurum hefur fengið gamlan samstarfsmann til liðs við sig til að endurhanna hinn sívinsæla Texasborgara og segir:
“Eiki Feiti hamborgararjaxl er að yfirfara og bæta Texasborgarana, skifta um áherslu, sósu framsetningu og fleira. Við Eiki lærðum sama á Hótel Sögu hér í denn og höfum haldið sambandi í gegnum árinn. Eiki rak Eikaborgarara og hamborgarstað sem hét Eiki Feiti og stofnað Salatbarinn og fleiri á sínum tíma, sprenglærður frá USA og var með veitingastað þar sem hét 2 Feitir Kokkar(Two Fat Chefs). Ég er mjög ánægður með samstarfið og held að Eiki sé það líka,” segir Maggi og sér Texasborgarann í nýju ljósi innan tíðar.