Bakararnir í litríka og lífræna bakaríinu á Frakkastíg í Reykjavík hafa ekki undan að baka og allt selst samstundis.
Því eru uppi plön um að opna tvö ný útibú á höfuðborgarsvæðinu en ekki liggur fyrir nákvæmlega hvar.
Viðskiptavinir koma jafnvel langt að til að skoða og reyna þetta nýstárlega bakarí og mörg nýju hótelanna í höfuðborginni eru orðin fastakúnnar. Hefur þurft að hafna viðskiptum við sum þeirra einfaldlega vegna anna því allt selst sem bakað er og afkastagetan ekki meiri.