Quantcast
Channel: Eiríkur Jónsson » Langar fréttir
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2053

SIMMMI OG JÓI “TRUFFLAÐIR”

$
0
0

Sumir fara í berjamó en Simmi og Jói fóru nýverið á truffluveiðar í Toscana og kynntu sér þetta eftirsótta hráefni: “Samstarfið hófst þegar við kynntumst Marco Savini, syni eiganda Savitar, sem sérhæfir sig í sölu á trufflum”, segir Jóhannes Ásbjörnsson, einn eigenda Hamborgarafabrikkunnar.

Buffon sælkeri

Marco frá Savitar og stjörnukokkurinn Michele Mancini eru á leið til Íslands í tilefni Trufflaðra daga. Trufflumatseðillinn var settur saman í samstarfi við Michele og inniheldur Truffluborgara og skyrtertu með truffluhunangi.

Michele er þekktur kokkur á Ítalíu og stýrir veitingahúsi í eigu landsliðsmarkmanns Ítala, Gianluigi Buffon.

“Það er mikið ævintýri að fá kokk eins og Michele til samstarfs við okkur en við Jói höfum lengi verið aðdáendur hvítu trufflunnar”, segir Sigmar Vilhjálmsson, einn eigenda Hamborgarafabrikkunnar. Michele tekur í sama streng: “We are totally in love with the The Hamburger Factory and we really look forward to introducing the truffle in Iceland with Simmi and Joi and their team”, segir Michele Mancini.

Il Maestro

Stjarnan á Trufflumatseðli Fabrikkunnar er nýr truffluborgari sem fékk nafnið Il Maestro. Um er að ræða heiðursborgara Kristjáns Jóhannssonar óperusöngvara sem bjó og starfaði við sönglist á Ítalíu um áratugaskeið. Il Maestro skartar japönsku trufflumajónesi, truffluhunangi og hvíttruffludufti og er borinn fram með trufflubernaisesósu.

“Það gleður mitt ítalsk-íslenska hjarta að Simmi og Jói skulu hafa skírt þennan hamborgara mér til heiðurs. Hann er ómótstæðilegur enda er trufflan alveg einstakt hráefni, buonissimo eins og þeir segja”, segir Kristján Jóhannsson.

Hvíta trufflan sem nefnist á frummálinu “Trifola d’alba Madonna”, vex villt í jörðu og er af sveppaætt. Hún er mjög sjaldgæf og finnst eingöngu seint á haustin í takmarkaðan tíma, nálægt rótum ákveðinna tegunda trjáa og eingöngu á Ítalíu. Truffluveiðimenn með hjálp sérþjálfaðra truffluleitarhunda þefa hana uppi. Algengt kílóverð á ferskri hvítri trufflu er um 1 m.kr. en verðið fer þó töluvert eftir stærð trufflunnar. Stærsta truffla sem fundist hefur vó um 1,5 kg. og var seld á uppboði fyrir ríflega 42 m.kr.

Ný rödd Fabrikkunnar

“Þetta er Kristinn R. Ólafsson sem talar frá Madrid”. Hvert mannsbarn þekkir pistlana hans og röddina. Þessi lífskúnstner frá Spáni er eins þjóðlegur og hugsast getur. Rétt eins og Íslenska Hamborgarafabrikkan. Og þess vegna gleður það Simma og Jóa að segja frá því að Kristinn og Hamborgarafabrikkan hafa gengið til samstarfs.

“Nei ég er ekki að fara að grilla hamborgara eða þjóna til borðs, ég er orðin rödd Hamborgarafabrikkunnar. Simmi og Jói hringdu í mig eftir að ég hætti hjá Rúv. Sögðust elska röddina mína. Ég sagði á móti að ég hefði mikla matarást á hamborgurunum þeirra”, segir Kristinn glaður í bragði. Framvegis mun því Kristinn R. tala frá Hamborgarafabrikkunni, en ekki frá Madrid. Sjáið hér!


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2053