Fyrir um stundu bárust þær fregnir frá listakonunni Sigrúnu Eldjárn að 14 stiga hiti væri í Svarfaðardal og þykir það með ólíkindum nokkrum vikum fyrir jól.
Á sama tíma var átta stiga hiti í Reykjavík og rigning með köflum sem einnig verður að teljast gott en nú leika hlýjar lofttungur um Ísland.