Jóna Sólveig Einarsdóttir, varaformaður Viðreisnar og nýr formaður utanríkismálanefndar, er ættuð austan úr Mýrdal , af góðum framsóknarættum.
Afi hennar var Einar ráðunautur Þorsteinsson og móðir er Elín Einarsdóttir, bóndi í Sólheimahjáleigu, ferðafrömuður, sveitarstjórnarmaður og fleira í Mýrdalnum, systir Jóhönnu fréttamanns Einarsdóttur.
Bróðir Jónu, Einar Freyr Elínarson, er svo varaþingmaður Framsóknar á Suðurlandi og formaður Félags ungra bænda.
En af því Jóna Sólveig er nú orðin formaður utanríkismálanefndar á hún eftir að eiga í nánum samskiptum við sendiherra erlendra ríkja hér í Reykjavík. Þá er ekki slæmt að vera tengdadóttir íslensks sendiherra, Sturlu Sigurjónssonar, sem er nú sendiherra Íslands í Kanada, en var áður í Kaupmannahöfn og hjá Nató. Áður en hann hóf feril sinn sem diplómat var hann í læri á fréttastofu Ríkisútvarpsins og þá einkum í erlendum fréttum.