Á Hlemmi bíður fólk eftir strætó. Sjálf strætóstöðin bíður einnig eftir nýju hlutverki því hún er að daga uppi eins og allir sjá sem þar eiga leið um. Fáir á ferli og drungi í lofti.
Borgarstjóri hefur lýst áhuga á að opna þarna matvælamarkað að erlendri fyrirmynd en víða í stórborgum hafa yfirgefnar brautarstöðvar fengið það hlutverk.
Með öllu er óþarft að rífa húsið því það stendur fyrir sínu og er alls ekki ljótasta byggingin í hverfinu – arkitektúrinn er barn síns tíma.
En þarna verður eitthvað að gerast.