Tvær gæsafjölskyldur stöðvuðu umferð á aðrein úr Breiðholti niður á Breiðholtsbraut skömmu áður en leikur Englands og Rússlands hófst á EM.
Fyrri fjölskyldan vaggaði rólega yfir götuna á meðan sex bílar biðu og þá komu önnur og tafði sex aðra bíla.
Svo héldu gæsafjölskyldurnar áfram með stefnuna á Mjódd – kannski til að horfa á leikinn á hverfiskránni?